Ótrúlegt sjónarspil
28.3.2010 | 19:49
Fór að gosstöðvunum sl. föstudag, þetta var ótrúlega skemmtilleg upplifun.
Það verður forvitnilegt að fylgjast með þróun gossins og áhrifa þess á umhverfið á þessu fallega svæði. Hér er slóð á myndasíðu fyrir þá sem eru forfallaðir í gosmyndir...
http://www.pbase.com/bragason/eldgos
Nýr hraunfoss í Hrunagili | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Undarleg yfirlýsing Kolbrúnar
22.4.2009 | 22:56
Ég hef talið frá því að kosningabaráttan hófst að frambjóðendur vinstri grænna munu tala af sér fylgið. Kolbrún Halldórsdóttir gerði tilraun til þess í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hún sagði að vinstri græn væru á móti olíuleit á Drekasvæðinu. Skömmu síðar sendir framboðið út fréttatilkynningu og áréttar að flokkurinn hefur ekki lagst gegn olíuleit á Drekasvæðinu.
Dægurmál | Breytt 23.4.2009 kl. 18:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ESB kosningar 2010
13.4.2009 | 22:29
Stefnuyfirlýsing Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs var samþykkt á stofnfundinum, 6. febrúar 1999. Samskipti við Evrópusambandið ber að þróa í átt til samninga um viðskipti og samvinnu, m.a. á sviði menntamála, vinnumarkaðsmála og umhverfismála. Hugsanlegur ávinningur af aðild Íslands að Evrópusambandinu réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað. Hagsmunir fjármagns og heimsfyrirtækja eru í alltof ríkum mæli drifkraftar Evrópusamrunans, miðstýring, skrifræði og skortur á lýðræði einkennir stofnanir þess um of.
10 árum seinna, úr ályktun 2009. Vinstrihreyfingin grænt framboð telur nú sem fyrr að hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins. Sjálfsagt er og brýnt að fram fari opin og lýðræðisleg umræða um samskipti Íslands og sambandsins. Landsfundur VG leggur áherslu á að aðild íslands að ESB eigi að leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu. Landsfundur telur mikilvægt að fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu fái rækilega umræðu og að hliðsjón verði höfð af væntanlegum stjórnarskrábreytingum og hvað eðlilegt getur talist þegar afdrifaríkar ákvarðanir eru teknar um framsal og fullveldi.
Snjallt hjá Vinstri Grænum en með þessari ályktun eru þeir búnir að tryggja sér forsætisráðherrastólinn eftir næstu alþingiskosningar. Árið 1991 fékk Davíð Oddsson forsætisráðherrastólinn en Jón Baldvin EES samninginn. Árið 2009 mun Steingrímur J. Sigfússon fá forsætisráðherrastólinn í ríkisstjórn með Samfylkingunni og fallast jafnframt á að fara í umræður um ESB aðild.
Snemma árs 2010 verður kosið um aðild að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ingibjörg hættir....
8.3.2009 | 22:03
Það er ljóst að mikill meirihluti Samfylkingarfólks treysti Ingibjörgu til að leiða flokkinn á vit betri tíma fyrir íslenska þjóð. Ég tel að brotthvarf hennar komi ekki til af pólitískum þrýstingi frá flokksmönnum eins og haldið var fram í kvöldfréttum á RÚV. Heldur raunsætt mat Ingibjargar á stöðinni. Allt bendir til þess að Dagur B. Eggertson verði næsti formaður Samfyllkingarinnar en Jóhanna áfram forsætisráðherraefni. Að vísu má búast við einhverri ókyrrð, það eru ávallt til draugar sem þurfa stöðugt að minna á sig, pólitískar afturgöngur, gamlar og nýjar.
Ingibjörg Sólrún hættir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ballið er búið, ljósin kveikt ....
21.1.2009 | 22:41
Dagar Geirs á forsætisráðherrastóli eru taldir, sætasta stelpan segir honum upp eftir landsfund ef ekki fyrr.
Hvernig mun Sjálfstæðisflokkurinn ná vopnum fyrir næstu kosningar? Hvernig mun landsfundurinn taka á Evrópumálunum? Verður kosinn nýr formaður?
Á þessum tímamótum óska ég eftir þjóðstjórn, það þarf að skapa sátt í samfélaginu. Við gerum það ekki með því að draga Framsóknarflokkinn, VG eða Samfylkinguna að borðinu.
Dægurmál | Breytt 28.1.2009 kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að fljóta sofandi að feigðarósi...
17.1.2009 | 00:09
Skúli Helgason: Krafa um breytingar á rétt á sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Engin átylla ...
4.1.2009 | 19:53
Dægurmál | Breytt 9.1.2009 kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ingibjörg er að svara Geir..
2.1.2009 | 18:58
Geir var líklega að reyna að miðla málum í sínum flokki með því að lofa kosningum um umsóknaraðild. Ingibjörg er að svara útspili Geirs. Hatrammar kosningar verða fljótlega á næsta ári. Geir virðist vera patt.
Eftir því sem ráðamenn þrjóskast við að sýna ábyrgð þá eykst andstaða við EB aðild. Hvernig eiga ráðamenn sem eru rúnir trausti þjóðarinnar að geta leitt hana í EB. Ýmsir munu taka afstöðu gegn ráðamönnum og fella EB aðild á þeim forsendum.
Alþingiskosningar samhliða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 3.1.2009 kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óákveðnir og auðir ?
2.1.2009 | 13:50
Það vantar klárlega upplýsingar í þessa frétt, hversu stórt var úrtakið og hlutfall þeirra sem skila auðu eða neita að svara?
Ríkisstjórnin nýtur stuðnings 36% kjósenda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Neyðarkall
1.1.2009 | 14:13
Fór í bæinn að í gær til að fylgjast með félögunum sem tóku þátt í Gamlárshlaupi ÍR. Frábær þátttaka var í hlaupinu og mikil stemming. Á heimleið átti ég leið um Arnarhól og sá þá hvar hópur mótmælanda var búinn að kveikja á neyðarblysum fyrir utan stjórnarráðið. Ég get vart séð hvernig ríkisstjórnin ætlar sér að vinna sig út úr þessari alvarlegu stöðu. Með hverjum degi sem líður mun ástandið versna. Ráðamenn verða að vísa veginn og sýna ábyrgð í verki. Álitið sem umboðsmaður Alþingis sendi frá sér er ekki til þess fallið að efla trú manna á ráðherrum þessa lands.
Dægurmál | Breytt 4.1.2009 kl. 00:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)